laugardagur, júlí 18, 2009

Símamótið - á morgun sunnudag !

Hey þið, frábæru stelpur !!!
Hlakka til að eiga 3ja flotta fótboltadaginn á morgun ......
A-liðið á 2 hörkuspennandi leiki kl. 9:30 og 12 og svo leik um sæti. A-lið á að mæta kl. 8:50 í fyrramálið við völl 3 !
B-liðið á líka 2 hörkuspennandi leiki, undanúrslit við Keflavík kl. 10:30 og leik um sæti kl. 12. B-lið á að mæta kl. 9:50 í fyrramálið við völl 2!
C-liðið á líkt og hin liðin okkar, 2 hörkuspennandi leiki á morgun, undanúrslit við Víking kl. 11 á velli 3 og svo leik um sæti kl. 13 en það kemur í ljós eftir fyrri leikinn hvar og við hverjar við eigum að spila. C-liðið á að mæta kl. 10:20 í fyrramálið. 
Sigrún er orðin veik greyið og kemur því ekki á morgun .... vonandi batnar henni sem fyrst !
Kolbrún mætir með b-liðinu og ver markið vel líkt og hún hefur verið að gera með c-liðinu.
Sjáumst hressar og kátar á morgun
Leggjum okkur allar fram í alla leikina og klárum síðasta dag mótsins með STÆL  ..... svo erum við komnar í frí !

ÁFRAM ÞIÐ - ÁFRAM HAUKAR
kveðja
Ragga

Engin ummæli: