sunnudagur, ágúst 23, 2009

Næstu vikur !

Stelpur ! Takk fyrir síðast .... stóðuð ykkur frábærlega eins og vanalega :)

15. september verða breytingar á flokknum þegar eldra árið fer í 5. flokk og við fáum stelpur upp í staðinn !! Þangað til er planið ca. svona :

Æfingar á þri. og fim. kl. 16 á Ásvöllum (úti) og föstudagskvöldið 4. september ætlum við að gera e-ð skemmtilegt saman (nánar um það síðar) !!!

Sjáumst á þri.

kveðja
Ragga

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæl Ragga, hvernig er æfingaplanið eftir 15 sept? Það væri gott að vita það þar sem allir eru byrjaðir að skipuleggja veturinn og það má jú helst ekkert stangast á. Kv Lizy

VERA HELGADÓTTIR sagði...

HÆHÆ!Vera hér;)kvenar á þri. og fim. núna á morgun?kv VERA HELGADÓTTIR

Nafnlaus sagði...

Katla mun verða eitthvað sein á æfinguna á morgun þar sem hún er að byrja í tónó.

Kveðja, Rósa.

Nafnlaus sagði...

Gugga er í tónlistarskólanum til 4 á þriðjudögum og mætir því aðeins of seint þá daga

kv. Anna

Nafnlaus sagði...

Katla er akkúrat í tónlistarskólanum á þessum dögum :( hún kemur til með að mæta aðeins seint á þriðjudögum en getur líklega ekki mætt á fimmtudögum.

Kveðja, Rósa.

Nafnlaus sagði...

Thelma getur ekki mætt á þriðjudögum eftir þessa viku.
Kveðja,
Soffía