föstudagur, júní 18, 2010

Krókurinn .... styttist í þetta :D

Kostnaður, hvað á að taka með sér og fleira, set ég inn um helgina !
Þið sem ætlið að gista á tjaldsvæðinu endilega kommentið hér og þeir sem ætla að leggja tímalega af stað .... endilega reyna að taka frá svæði fyrir "alla hina" því að skemmtilegast væri að allar Haukafjölskyldur yrðu á sama stað :) !!!
Það vantar 2 fararstjóra og ef þeir vilja gista með stelpunum þá er það velkomið og frír matur innifalinn :) ... ef ekki þá þurfum við að skipta þessum hlutverkum á milli foreldra eins og t.d fylgja stelpunum í og úr mat, út á völl o.s.frv. þar sem ég verð út og suður um alla velli :) :)

Ef það eru e-r spurningar eða ef e-r er orðinn stressaður yfir hversu stutt er í mótið og nánast engar upplýsingar komnar þá endilega hafið samband við mig ! ..... þetta er samt ekkert til að stressa sig yfir :)

kveðja
Ragga
s. 691 4070

11 ummæli:

Soffía sagði...

Thelmu fjölskylda ætlar að vera á tjaldstæðinu ;)

Steinunn sagði...

Sæunnar fjölskylda stefnir að því að koma upp tjaldi á Nöfum snemma á föstudagskvöldi.

Anna sagði...

Lilju Hrundar fjölskylda ætlar að vera á tjaldsvæðinu. Við erum ekki viss hvenær við komum.

Nafnlaus sagði...

Sigrún Birna og fjölskylda verða á tjaldsvæðinu .

Nafnlaus sagði...

Silja Björk og fjölskylda verða á tjaldstæðinu. Í fyrra vorum við á efra tjaldstæðinu og það var mjög gott að vera þar. Gæti samt orðið vindasamt þar í roki þar sem það stendur ansi hátt.

Nafnlaus sagði...

Svava Ósk og fjölskylda verða á tjaldsvæðinu.

Nafnlaus sagði...

Katrínar Hönnu fjölskylda verður á neðra tjaldstæðinu eins og í fyrra því við erum í tjaldi, en þar var ekki rafmagn. Við verðum komin ca kl. 14
Kv Lizy

Guðbjörg sagði...

Gyðu Maríu fjölskylda verður á tjaldstæðinu, leggjum af stað upp úr hádegi á föstudeginum.

Nafnlaus sagði...

Bryndísar fjölskylda verður í tjaldi á neðra tjaldsvæðinu, leggjum af stað upp úr hádegi á föstudeginum.

Nafnlaus sagði...

Alexöndru Lífar fjölskylda verður á neðra tjaldssvæðinu, eins og í fyrra. Leggjum í ann um hádegi.
Kv. Díana
p.s Lizy ef tið eruð mætt fyrst takið þið á ekki frá gott pláss á neðra tjaldsvæðinu ?

Nafnlaus sagði...

Hæ
Alexöndru fjölskylda verður á neðra tjaldsvæðinu.
Getur vel verið að útsendarar okkar verði komnir á fimmtudag. Þeir fara þá í það að taka frá, kemur bara í ljós. Annars er það bara fyrsta haukafólk á svæðið sem sér um það.

Kv. Kristín