föstudagur, september 03, 2010

ATH. !!! Á þriðjudag 6.fl. kl. 17:00-18:00 á Ásvöllum

Knattspyrnudeild Haukar stendur í því þessa dagana að ráða þjálfara á kvennaflokka félagsins. Við erum að leita að einstaklingi í 100% starf sem yfirþjálfari og að auki mun þessi sami aðili þjálfa 3 flokka hjá félaginu. Af þessum sökum hefur þjálfunin ekki verið í jafnvægi sem við hörmum en við viljum biðja forelda/forráðamenn um að gefa okkur næstu viku til að vinna úr þessum málum. Ragnheiður Berg mun sjá um þjálfun 5.-6. flokks kvenna í næstu viku eða þar til málin leysast á farsælan hátt. Með þessu viljum við bæta faglega þátt starfsins til muna og búa markvisst vel að okkar frábæru iðkendum. Æfingatímar flokkanna munu breytast eitthvað og því verð ég að biðja forráðamenn um að fylgjast vel með á hér á bloggsíðunni og heimasíðu félagsins.

Áfram Haukar
Guðbjörg Norðfjörð

Íþróttastjóri Hauka

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Áfram Haukar :-)

Nafnlaus sagði...

Hvenær fer þetta að koma í ljós? Er að reyna að skrá dóttur ´mína í annað með og verð að bíða eftir föstum tímasetningum á æfingum fyrst

Nafnlaus sagði...

Sammála er einmitt líka að bíða eftir æfingatímunum,