fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Ekkert slegið slöku við!

Þrátt fyrir örugglega 27 stiga frost á Ásvöllum mættu 11 vel klæddar fótboltastelpur á æfinguna í dag. Að sjálfsögðu voru aðstæður þannig að ekkert vit hefði verið í því að vera úti á gervigrasinu að drepast úr kulda. En við deyjum ekki ráðalaus. Í staðinn var farið inn í karatesalinn á Ásvöllum og hamast í skotbolta í næstum 50 mínútur án þess að fengi leið á. Allar hressar og þrátt fyrir slæmt útlit í fyrstu endaði þetta með þrælskemmtilegri æfingu.

Ég hugsa að það verði í algjörum undantekningatilvikum sem æfingum verði frestað. Þegar veður leyfir ekki æfingar úti þá finnum við okkur oftast eitthvað að gera inni á Ásvöllum - enda er nóg af plássi þar til að gera hitt og þetta skemmtilegt.

Að gefnu tilefni undirstrika ég að foreldrafótboltinn verður sunnudaginn 26. nóvember en ekki núna á sunnudaginn!

Engin ummæli: