Sunnudaginn 26. nóvember verður foreldrafótbolti á æfingatímanum í Víðistaðaskóla. Við hitum upp í nokkrum leikjum og síðan verður spilað foreldrar á móti dætrum. Til að jafna leikinn örlítið ætla ég að biðja foreldra um að draga fram þykkustu lopasokkana sína og mæta með í leikinn. Enginn foreldri fær að spila með nema að vera í hnausþykkum lopasokkum eða einhverju öðru álíka heftandi! :-)
Æfingin byrjar eins og venjulega klukkan 14:00 og í þetta skiptið látum við okkur nægja að vera til 15:00.
Nú er um að gera að hvetja stelpurnar áfram með því að sýna íþróttaiðkun þeirra verðskuldaðan áhuga. Mætum öll og höfum gaman!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli