fimmtudagur, nóvember 09, 2006

Frábær þáttaka í pizzapartýinu

Það er ljóst að það þarf ekki að pína margar til þess að mæta og borða nokkrar pizzasneiðar með vinkonunum. 26 stelpur mættu og hámuðu í Hróabökur og brostu út að eyrum.

Í partýinu tilkynnti ég stelpunum það að ég væri búinn að bóka fyrir okkur íþróttahúsið í Vogunum síðustu helgina í janúar. Þá verður farin sólarhringsferð í Vogana, gist eina nótt í íþróttahúsinu þar og keppt á "Ólympíuleikunum". Ólympíuleikarnir ganga þannig fyrir sig að á fyrri deginum er hópnum skipt í nokkur lið sem keppa síðan í hinum ýmsu íþróttagreinum. Seinni daginn er síðan fótboltamót sett upp þar sem sömu lið keppa og að lokum fara allir í sundlaugina. Kostnaðurinn verður eitthvað í kringum 1500 krónum á haus og í því verður innifalin gisting, sundlaugarferð og pizzaveisla. Enn nánar um þetta þegar nær dregur.

Að lokum vil ég þakka Ásu, mömmu Ásgerðar, fyrir hjálpina í pizzapartýnu.

Engin ummæli: