Loksins gaf ég mér tíma til að henda hingað inn þessum myndum sem Íris, mamma Elísu, tók. Frábærar myndir sem ná vel andanum sem ríkti þennan sólarhring sem við vorum öll saman. Brjálað stuð í Tarzan-leiknum, trampólínhástökkinu sem heppnaðist frábærlega, handbolti, körfubolti, 100 m. spretthlaup og að sjálfsögðu fótbolti! Myndirnar koma eitthvað smá klessulega fram, en það það skiptir engu svo sem. Takk fyrir myndirnar Íris.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli