sunnudagur, febrúar 11, 2007

Æfingaleikur við FH 22. febrúar kl. 17 í Risanum


Fimmtudaginn 22. febrúar kíkjum við í heimsókn til FH og spilum æfingaleik í Risanum kl. 17:00-18:00. Það er einmitt á sama tíma og æfingar eru hjá okkur, svo eina sem breytist er að við verðum uppi í Risa. Ég dreifi miðum til stelpnanna þegar nær dregur. Ég kalla eftir góðri mætingu og vona að sem flestir foreldrar komi og fylgist með. FH eru með 25-30 stelpur í 6.flokki og því ljóst að, þar sem við eru eitthvað aðeins færri en það, að allar fá að spila heilmikið í þessum leikjum.

Áfram Haukar!!!

Engin ummæli: