miðvikudagur, maí 23, 2007

Ég og Heilinn minn

Já heilinn minn brá sér í frí um daginn og ákvað að skella á pizzapartýi á Ásvöllum á guðsheilögum frídegi verkalýðsins; öðrum í hvítasunnu. Það gengur víst ekki!

Pizzapartíinu verður því hér með frestað um viku og verður í staðinn mánudaginn 4. júní. Næsta æfing er á fimmtdaginn 24. maí og þá mun ég dreifa miðum með þessum skilaboðum sem og æfingaáætluninni næstu 2-3 vikurnar, en hún lítur svona út:

Fimmtudagur 24. maí - Ásvellir 17:00-18:00
Mánudagur 28. maí - Ásvellir 16:00-17:00
Miðvikudagur 30. maí - Ásvellir 16:00-17:00
Fimmtudagur 31. maí - Ásvellir 17:00-18:00
Mánudagur 4. júní - Íþróttamiðstöðin Ásvöllum 16:00 - 17:30 Pizzapartý!
Miðvikudagur 6. júní - Ásvellir 16:00-17:00
Fimmtudagur 7. júní - Ásvellir 17:00-18:00
Helgin 8-9.júní - Bónusmót Þróttar í Laugardalnum

Frá og með mánudeginum 11. júní mun síðan 6. flokkur kvenna æfa alltaf frá 10:45-12:00 mánudaga til fimmtudags. Það er sem sagt frí föstudag til sunnudags í allt sumar nema þær helgar sem mót eru (sjá eldri bloggfærslur um mót sumarsins). Þetta æfingafyrirkomulag verður í gangi þar til skólarnar hefja aftur göngu sína í lok ágúst.

Engin ummæli: