mánudagur, maí 21, 2007

Pizzapartý á mánudaginn

Mánudaginn 28. maí verður Pizzapartý hjá flokknum! Það er mæting á 2. hæðina í íþróttamiðstöðina á Ásvöllum (þar sem sjónvarpið er) klukkan 16:00 og við verðum að til 17:30. Það kostar 400 krónur á mann að vera með í pizzunni, og hver kemur með sinn drykk. Ekkert nammi takk!

Í leiðinni vill ég tilkynna að helgina 8.-9. júní förum við á Bónusmót Þróttar sem verður haldið í Laugardalnum. Við spilum bara annan daginn en það liggur ekki fyrir á hvorum deginum við spilum fyrr en leikjaniðurröðunin er staðfest. Mótsgjaldið er 1200 krónur á haus. Nánar um þetta þegar nær dregur og fylgist með hér á heimasíðunni.

Engin ummæli: