mánudagur, júní 30, 2008

Hnátumótið á morgun

Hnátumótið verður á morgun inní mosó á Varmávelli, það er aðalvöllurinn inní mosó, ekki þarna lengst í burtu. Mæting er kl 14:30. Fyrsti leikur er kl 15:00 og sá síðasti 19:30. Þetta verður smá törn og því verða allar að vera með hollt og gott nesti með sér. Einnig vera klæddar eftir veðri. þó svo það sé sól og blíð er fínt að hafa jakka eða góða peysu með til að fara í á milli. Ég kem með keppnistreyjur.

Ég er því miður að fara sjálf að keppa á morgun og get ekki verið með þeim allan tíman. Er ferlega fúl með það en lítið sem ég get gert í því. Einnig er Sara Björk sem hefur verið aðstoðarþjálfarinn okkar núna í sumar líka ða fara að keppa. Ég er búin að fá aðstoð en væri mjög sátt ef einhverjir foreldrar sem þekkja stelpurnar vel myndu bjóðast til að hjálpa mér líka.

Ég ætla að hringja út í alla foreldra í kvöld til að vera með það á kristaltæru hverjar koma og hverjar ekki. Einnig uppá ef einhverjar foreldar eiga í erfiðleikum með að skutlast svona snemma dags þá er kannski hægt að fá far hjá öðrum.

Kv. Svava

Engin ummæli: