Þá fer að líða að Faxaflóamótinu sem verður haldið í Akraneshöllinni sunnudaginn 13. maí. Eftir æfinguna fimmtudaginn 10. maí mun foreldrastjórnin afhenda æfingagallana í Vallarhúsinu gegn greiðslu, svo við ættum að vera skrambi flott á því á mótinu. Þeir sem einhverra hluta vegna gátu ekki pantað galla á sínum tíma, þeim er bent á Fjölsport í verslunarmiðstöðinni Firði. Þar er hægt að kaupa æfingagallann, en á fullu verði.
Eldri árs stelpurnar, stelpur fæddar 1997, spila sem A-lið og yngra árs stelpurnar, þær fæddar 1998, spila sem B-lið. Það er því mæting 09:30 hjá A-liðinu og 10:00 hjá B-liðinu. Leikjaplanið er svolítandi:
Eldri árs stelpurnar, stelpur fæddar 1997, spila sem A-lið og yngra árs stelpurnar, þær fæddar 1998, spila sem B-lið. Það er því mæting 09:30 hjá A-liðinu og 10:00 hjá B-liðinu. Leikjaplanið er svolítandi:
| 1 | sun. 13. maí | 10:00 | FM - 6. fl. kvenna A-lið B | Akraneshöllin | Haukar | ÍA | ||
| 2 | sun. 13. maí | 10:25 | FM - 6. fl. kvenna B-lið B | Akraneshöllin | Haukar | Breiðablik 2 | ||
| 3 | sun. 13. maí | 10:50 | FM - 6. fl. kvenna A-lið B | Akraneshöllin | Selfoss | Haukar | ||
| 4 | sun. 13. maí | 11:15 | FM - 6. fl. kvenna B-lið B | Akraneshöllin | Selfoss | Haukar | ||
| 5 | sun. 13. maí | 11:40 | FM - 6. fl. kvenna A-lið B | Akraneshöllin | Haukar | Afturelding | ||
| 6 | sun. 13. maí | 12:05 | FM - 6. fl. kvenna B-lið B | Akraneshöllin | Haukar | FH 2 |
Frá og með nú eru öllum innanhússæfingum lokið og verða æfingar framvegis úti á Ásvöllum. Til að hafa þetta kýrskýrt þá lítur æfingaáætlunin fyrir maí svona:
- Fimmtudagur 10. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00.
- Sunnudagur 13. maí - Faxaflóamótið Akraneshöllinni 10:00. Mæting 09:30 í Akraneshöllina (yfirbyggða knattspyrnuhúsið á Akranesi sem stendur við aðalvöll ÍA).
- Mánudagur 14. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
- Fimmtudagur 17. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00
- Sunnudagur 20. maí - Ásvellir gervigras 12:00-13:00
- Mánudagur 21. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
- Fimmtudagur 24. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00
- Sunnudagur 27. maí - FRÍ, Hvítasunnudagur.
- Mánudagur 28. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
- JÚNÍ - sumaræfingataflan verður tekin í gagnið.
1 ummæli:
Sæll Kristján.
Hún Brynhildur Ýr er að skella sér til Flórída á morgun og kemur aftur 26.maí, svo hún mætir þar af leiðandi ekki á æfingar á meðan.
Kv. Bryndís
Skrifa ummæli