þriðjudagur, maí 08, 2007

Fjör framundan

Þá fer að líða að Faxaflóamótinu sem verður haldið í Akraneshöllinni sunnudaginn 13. maí. Eftir æfinguna fimmtudaginn 10. maí mun foreldrastjórnin afhenda æfingagallana í Vallarhúsinu gegn greiðslu, svo við ættum að vera skrambi flott á því á mótinu. Þeir sem einhverra hluta vegna gátu ekki pantað galla á sínum tíma, þeim er bent á Fjölsport í verslunarmiðstöðinni Firði. Þar er hægt að kaupa æfingagallann, en á fullu verði.

Eldri árs stelpurnar, stelpur fæddar 1997, spila sem A-lið og yngra árs stelpurnar, þær fæddar 1998, spila sem B-lið. Það er því mæting 09:30 hjá A-liðinu og 10:00 hjá B-liðinu. Leikjaplanið er svolítandi:

1 sun. 13. maí 10:00 FM - 6. fl. kvenna A-lið B Akraneshöllin Haukar ÍA
2 sun. 13. maí 10:25 FM - 6. fl. kvenna B-lið B Akraneshöllin Haukar Breiðablik 2
3 sun. 13. maí 10:50 FM - 6. fl. kvenna A-lið B Akraneshöllin Selfoss Haukar
4 sun. 13. maí 11:15 FM - 6. fl. kvenna B-lið B Akraneshöllin Selfoss Haukar
5 sun. 13. maí 11:40 FM - 6. fl. kvenna A-lið B Akraneshöllin Haukar Afturelding
6 sun. 13. maí 12:05 FM - 6. fl. kvenna B-lið B Akraneshöllin Haukar FH 2


Frá og með nú eru öllum innanhússæfingum lokið og verða æfingar framvegis úti á Ásvöllum. Til að hafa þetta kýrskýrt þá lítur æfingaáætlunin fyrir maí svona:

  • Fimmtudagur 10. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00.
  • Sunnudagur 13. maí - Faxaflóamótið Akraneshöllinni 10:00. Mæting 09:30 í Akraneshöllina (yfirbyggða knattspyrnuhúsið á Akranesi sem stendur við aðalvöll ÍA).
  • Mánudagur 14. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
  • Fimmtudagur 17. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00
  • Sunnudagur 20. maí - Ásvellir gervigras 12:00-13:00
  • Mánudagur 21. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
  • Fimmtudagur 24. maí - Ásvellir gervigras 17:00-18:00
  • Sunnudagur 27. maí - FRÍ, Hvítasunnudagur.
  • Mánudagur 28. maí - Ásvellir gervigras 16:00-17:00
  • JÚNÍ - sumaræfingataflan verður tekin í gagnið.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sæll Kristján.
Hún Brynhildur Ýr er að skella sér til Flórída á morgun og kemur aftur 26.maí, svo hún mætir þar af leiðandi ekki á æfingar á meðan.
Kv. Bryndís